Aðalvalmynd

Könnun

RAKEL SARA ER.....

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Sigríður Ásdís Þórhallsdóttir
  • Staður: Akranes
  • Kyn: kvk
  • Atvinna: heimavinnandi húsmóðir......
  • Hjúskaparstaða: bara nokkuð góð
  • Um mig: ég sef með bangsa

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

ÉG OG MINN SÁLUFÉLAGI...........................

26. ágúst 2008 klukkan 21:33
Það er mjög fyndið einhvernvegin hvernig leiðir okkar lágu saman...... kynntist þér fyrir einhverja slysni!!!! Ótrúlegt að huxa til þess að ég hafi þekkt þig svona stutt þegar mér finnst þú alltaf hafa verið í mínu lífi!!!!!! Það var svo gaman að komast að því hvað við áttum mikið sameiginlegt og getum hlustað á sömu niðudrepandi tónlistina og verið í þunglyndiskast og hlegið og grátið saman út af helst engu.... En óákveðnari manneskju hef ég nú samt aldrei kynnst.. vá þú bara snýst í hringi stundum um sjálfan þig og veist ekkert hvað þú vilt, en vonandi ferðu nú að ákveða það og brillera ;-)

Þú ert minn sálufélagi og ég elska þig ofsalega mikið, ef bara ég hefði fæðst með tippi!!!!!

Elsku besta Bylgja mín, mér þykir svo óendanlega vænt um þig elskan mín og til hamingju með afmælið í dag og vonandi áttiru ýkt góðan afmælisdag þó svo að ég hafi ekki komið og hitta þig!!!! Þú ert ein sú kynþokkafyllsta kona sem ég þekki og það kemur ekkert á óvart að fólk úti um allan heim heillist af þér, konur sem karlar, ungir sem aldnir!!!!!!!!

GET ÉG FENGIÐ BARNIÐ MITT AFTUR EÐA HVAÐ?????

19. júlí 2008 klukkan 12:44
Já við erum að tala um það að fröken Rakel Sara búin að vera alveg herra pirraður núna í næstum því viku!!! Fékk bara hita og læti á sunnudaginn og var með í 3 daga og svo er hún bara öskrandi pirruð, má ekkert ske þá er allt ómögulegt... litla greyjið!!! Hún er komin með 2 litlar sætar tönnslur og pottþétt fleiri á leiðinni.... En ég bara þekki barnið ekki svona og langar að fá hana aftur þessa glöðu brosmildu stelpu sem bara lék sér og dundaði og var í góðum gír!!! En hún er reyndar miklu betri í dag en í gær svo við skulum vona að þetta verði brosdagur hjá sætu skvísunni.... Ég er alveg farin að sakna hennar!!! Að vísu er krakkinn náttla orðinn 8 og hálfs mánaða gamall svo það er nú allt í lagi að hún fari að láta finna aðeins fyrir sér, hefur nú ekki beint gert það hingað til...... svo stillt og góð!!! ALVEG EINS OG MAMMA SÍN Koss

Annars er allt bara fínt að frétta hjá okkur, Óli er að fara að veiða svo við Rakel Sara ætlum að fara í bæinn og lúlla hjá mö og pa og hafa það kósý og hitta eitthvað að fólki og svona..... Svo kemur Íris á fimmtudaginn og verður fram yfir verslunarmannahelgi svo það verður gaman hjá okkur!!!! Kannski maður smelli sér bara í útileigu um verslunarmannahelgina, hvernig væri það, prófa það for once......

Fengum sendingu frá tengdó í gær, mín búin að vera sveitt að baka brauð handa öllum!!!! Hún er heimavinnandi amma, eða svoleiðis vinnur reyndar aðeins seinni partinn en á daginn er hún að passa barnabarnið sitt og ætlar að passa Rakel Söru þegar ég fer að vinna..... Svo um daginn gistu þau 3 hjá þeim og það var nú minnsta málið, bara brjáluð stemming!!!! Margir öfunda mann að eiga svona frábæra tengdaforeldra og ganga þau undir nafninu "tengdó deluxe" hahaha...... Hef barasta aldrei lent í þessu áður og vona að ég geti verið svona til staðar fyrir börnin mín þegar ég verð eldri Brosandi

Jæja ef þið viljið hitta mig og sætustu pæjuna í heiminum á sunn-mán-þrið, þá bara be in bend.......... u know the number!!!

Kv.Sigga Dísa megaskvísa ;-)


HRÓS OG MÓÐGUN ÁRSINS..... á sama degi!!!!!!

25. júní 2008 klukkan 22:38
Já einmittt........ Við erum að tala um það að hér er búin að vera svo blússandi bongóblíða að menn muna bara ekki eftir öðru eins, ég var bara sólbrunninn um helgina. Óli ætlaði að grípa slökkvitækið hérna um helgina og úða í andlitið á mér því ég bara fjólublá í framan!!! hehehe... mjög notalegt allt saman!!!!!! Vá annars komu bara ýkt margir í heimsókn hérna um helgina, Gugga kom á föstudaginn, Inga og Helga Marý komu á laugardaginn og við áttum rosa góðan dag saman og Inga ætlaði barasta næstum því að flytja á Skagann!!! Á sunnudaginn komu svo Eyrún og Arndís Lilja og við fórum og hittum Guggu og Dagrúnu og þeirra familíjur þar sem strákarnir litlu voru að slá í gegn í fótboltanum. Svo í gær kom fyrrum meðleigandi minn hún Anna María og heimsótti okkur skvísurnar.... Alveg brjálaður gestagangur maður lifandi!!! 

Annars er Rakel Sara bestabarn alveg að brillera þessa dagana..... Skvísan bara komin í sérherbergi og verða þær systur þá saman í herbergi!!! Það gekk svona líka sláandi vel hjá henni, hún er svo dugleg þessi elska. Svo verður fyrsta orðið hennar örugglega "kreppa"... ég tók hana á tal um daginn og sagði við hana "Elsku Rakel Sara mín, nú er ástandið í þjóðfélaginu alls ekki nógu og gott og þá verður maður að halda að sér höndunum í einu og öllu" og hún er náttla eins og hún er gáfaðasta barn sem fæðst hefur Einstein endurfæddur og bara er farin að kúka í klósettið, er búin að gera það 5daga í röð!!!!! 

Já ég fékk alveg hrós og móðgun dauðans um helgina, mjög fyndið...... Ég og Gugga fröken á að eiga eftir 5daga vorum að ræða eitthvað barnastöff og hún sneri sér að mér og sagði "Já sko, ég vissi ekki að þú yrðir svona góður uppalandi" hahaha..... TAKK GUGGA MÍN ;-)  Ég var mjög ánægð með að heyra þetta...... 

Svo hitti ég frænku frænku minnar sem ég hef ekki séð í mörg mörg ár.... Dagrún frænka kynnti mig fyrir henni og sagði "hey manstu ekki eftir henni, þetta er hún Sigga Dísa, dóttir Siggu og Tolla"???  
Hún : Já ég man eftir henni.... Já hvað ert þú nú eiginlega orðin gömul???
Ég : Ég er 28ára :-/
Hún : VVVVÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁ, það er aldeilis.... (augun ætluðu útúr henni)
Ég : uhhhhh takk!!!!!!
Hún : Ohhhh ég man alltaf eftir því að þú "varst" alltaf svo sæt!!!!
Ég : uhhhhh takk!!!!! VAR..... róleg á skothríðinni sko
Hún : (var ekki að fatta neitt, og eftir smástund) hahah.... ha já nei ég meinti það sko ekki þannig sko... hérna!!! 

           EINMITT............ ekkert hægt að koma sér útúr þessu vinan ;-)



Jæja best að far að pakka, ætla að skella mér í dántánið á morgun og ég og Hófí frænka ætlum að reyna að versla eitthvað.......

LATER MY DARLINGS.....

Fröken Sigríður á neytendavaktinni.......

16. júní 2008 klukkan 22:24
Nei eruði ekki að grínast í mér eða hvað......... Maður lifandi hvað allt er orðið sláandi dýrt vá!!!! Maður fer í búðina kaupir einn léttan poka, nei nei kannski fimmþúsundkall... þetta er ekki eðlilegt sko!!! Olíulíterinn næstum því 190kr og ég keyri um á Land Cruiser voða breyttum eitthvað á 38"dekkjum svo hann eyðir aðeins meira en hinn almenni fjölskyldubíll og það kostar um 14000krónur að fylla hann..... hef aldrei verið jafn fegin að vera ekki að vinna á bensínstöð lengur, aumingjans starfsfólkið fólk alltaf eitthvað rövlandi við þau!!! 

Í Bónus kostaði svona tvöfaldur pakki af blautþurrkum 598kr, svo var ég í Hagkaup nei og þá sá ég þar einfaldan pakka og hann kostaði 618kr.... ER ÞETTA EITTHVAÐ GRÍN?????? En viku seinna var þetta búið að hækka í Bónus uppí 629 og vikunni þar á eftir 659 svo þetta hækkaði um 61kr á 2 vikum sem hlýtur að teljast ansi mikið...... Ein vatnsmelóna kostar yfir 500kall ég endurtek "vatns" melóna!!!!! Keypti mér smá bland í poka vá það var ekki mikið sko, nei það kostaði 220kr hélt að hún hefði eitthvað misreiknað sig...... Ég veit eiginlega ekki hvað ég á að gera sko, spurning að fara að safna dósum, maður fær nú svo sem ekkert of mikið borgað frá fæðingarorlofssjóði ha.....

Oh nú er Rakel Sara barasta orðin 7 og hálfs mánaða..... Alveg náttla fröken sætust og bestust alltaf svo kát og glöð, svo gaman að vera með henni alltaf!!!! Hún er ekkert smá dugleg að leika sér getur setið á gólfinu og dundað sér í dótakassanum sínum alveg heillengi og slefað allt út... hehehe.....  Alveg farin að borða fullt af mat grænmeti og brauði og svona algjör stemming, er ekkert smá mikið sport að borða brauð, frekar montin með sjálfan sig!!!! Spurning að kaupa kopp handa henni, hún kúkar alltaf á sama tíma þá myndi ég alla vegana spara eina bleiju og 2-3 blautþurrkur...... maður verður bara að reyna að spara í öllum hornum!!!

17.júní á morgun og ég var að huxa hvort maður ætti að skunda í Reykjavík city, það er alltaf svo gaman maður hittir alltaf svo marga og gæti aldeilis sýnt litlu pæjuna mína en svo bara er ég ekki alveg að nenna því, dagskráin sökkar og að vera í miðborginni ásamt milljónogfimmtíuþúsund manns er ekki alveg að gera sig með kerru.... Svo ég held að við verðum bara heima, vonandi fáum við bara heimsókn frá nokkrum vel völdum einstaklingum!!!!! Maður skellir sér kannski bara í skrúðgöngu hérna á Skaganum..........

Isss annar ísbjörn mættur á svæðið, þetta finnst mér alveg merkilega fyndið... en finnst voða gaman að þeir ætla ekki að drepa greyið bangsa í þetta skipti, vonandi sefur hann bara fram á hádegi á morgun og gerir ekkert af sér............

Jæja veriði sæl að sinni!!!!!!!!!!! 

P.S. HÆ HÓ JIBBÝJEIJ OG JIBBÝJEIJ ÞAÐ ER AÐ KOMA 17JÚNÍ.... júhú ;-)

MAN.UTD MEISTARAR.................................

21. maí 2008 klukkan 23:21
Vá eruði að grínast með mest spennandi leik fyrr og síðar........ jehdúddi!!! Vá hvað þetta var tæpt, en algjör snilld..... JIBBÝ....... Annars er ég bara búin að vera i tölvufríi í alveg meira en viku.... Svo var ég alveg búin að komast að því að ég myndi bara hætta að blogga, ég hef ekkert að segja eða jú kannski fullt að segja en eina sem gerist þessa dagana hjá mér er eitthvað sem tengist litla snillingnum mínum það er náttla alltaf eitthvað nýtt að ske hérna hjá okkur, en held að það sé mjög takmarkað hvað fólk nennir að hlusta á mig rövla um það!!!! Er alveg búin að komast að því að ég er alveg óþolandi þessa dagana, fer bara í búðir og beint í barnadeildina  að kíkja á barnadót... finnst endalaust gaman að skoða duddur ;-)  Held að ég hafi létt verið að gera Hófí frænku geðveika með öllu þessu barnakjaftæði... hahahaha..... En svona er þetta bara, ég meina þetta er mitt líf algjörlega þessa dagana, bara vera heima og vera mamma!!!! Svo fór ég að huxa að ég meina fólk sem er kannski í golfi, myndi klárlega fara beint í golfrekkann í hillunni....... svo þetta er kannski alveg eðlilegt!!!!! 

Er líka alveg mjög föst í því að ef einhver spyr mig "jæja hvað er að frétta"??? Þá er ég bara " já nei nei ekkert að frétta hérna sko, maður er bara heima að skipta á skítableyjum og fara í göngutúr ha"!!!! En svo eru allir að segja mér að það sé alltaf nóg að gera hjá mér, alltaf fólk í heimsókn og svona........ Sé það líka alveg þegar ég skrifa kannski á barnaland að það hefur kannski hellingur gerst, en ég er bara eins og langafi minn þegar hann var farin að missa minnið kallinn, kannski 5 búnir að heimsækja hann um daginn og svo kom maður, jæja afi minn er einver búin að koma til þín " ha til mín, nei ég er búin að hanga hérna aleinn í allan dag" HAHAHAHA.......

Síðustu helgi fórum við í Húsdýragarðinn á þarna stöð2 daginn og maður lifandi sko, vissi ekki að það byggju svona margir á Íslandi, það voru held ég svona 560þúst manns þarna!!! Vá frændi minn fékk sér candy-floss sem by the way kostaði 300kall nei og hann beið í röð í einn og hálfan tíma......RÓLEGUR!!!!! Svo vorum við sem suprise afmæli fyrir ömmu mína og vá það var snilld, hún alveg átti ekki von á þessu kellingin. Í gær fór ég í bæinn og ég og Hófí grínuðumst aðeins um bæinn og svo í dag fór ég í 2 heimsóknir og horfðum á leikinn. Á morgun ætlum við litla fjölskyldan að fara í Langeyjarnes í sveitina og hafa það kósý og skjóta nokkra máva og koma heim á laugardaginn og fara í útskriftargrillveislu um kvöldið hjá frænkum hans Óla og á sunnudaginn verður önnur grillveisla í mömmuklúbbnum mínum. Og vonandi á mánudaginn ætlar Hófí að koma og hún er búin að kaupa Mario Galaxy og við ætlum að hafa geðveika stemmingu alveg í helst tvo daga ;-)

Já einmitt..... það er sem sagt kannski alveg nóg að gerast hjá mér!!!!!!!

Jæja best að fara að pakka fyrir sveitina ;-)

JÓI FEL OG HÆGÐIR................

21. apríl 2008 klukkan 15:26
Já hvað get ég sagt...... Horfi nú stundum á Jóa Fel á stöð2 hérna á daginn og vá það sem hann lætur þetta líta út fyrir að vera auðvelt maður lifandi, bara slæsar allt á fullu með hnífnum gífurlega fagmannlega!!! Það tæki mig svona jah 4tíma að gera það sem tekur hann hálftíma... Jæja en alla vegana þá skruppum við Elín létt í Kringluna að versla í kvöldmatinn og komum við í bakaríinu hjá Jóa Fel að kaupa okkur brauð í kaffinu sem er ekki frá sögu færandi NEMA HVAÐ að við keyptum hálft brauð, já sem sagt nokkrar sneiðar og hvað haldiði að það hafi kostað....... 345 ÍSLENSKAR KRÓNUR!! Jehdúddi ég átti ekki til orð og spurði í sakleysi mínu, hvort það væri ekki heilt brauð við værum bara að kaupa hálft... já nei nei heilt kostaði rúmar 600krónur............... Nei ég náttla fór að leita af myndavélunum sko, hélt þetta væri falin myndavél eitthvað djók í gangi!!! nei nei haldiði ekki að kallinum sé bara fúlasta alvara með þessu. Já svo versluðum við aðeins í Hagkaup og Elínu fannst það soldið dýrt um 1800krónur, en svo fattaði ég það að það hefur verið að því að við keyptum líka skinkusalat frá Jóanum og guð má vita hvað það hefur kostað þessi litla ræfilslega dolla.....

Svo kannski í allt annað en ég hef soldið mikið velt því fyrir mér hvernig stendur á því að karlmenn fara á klósettið að gera "u know what" að þá kemur alltaf far og allt í viðbjóði en ekki þegar konur kúka!!! Var komin á það að kúkur karlmanna ferðast á meiri hraða en kúkur hjá konum og fleiri kenningar svona héngu í loftinu...... þegar mér var bent á það að ástæðan væri örugglega sú bara að konur ÞRÍFA eftir sig, myndu ekki skilja klóstið eftir svona eftir sig en menn þeir hafa hreinlega ekki hugmynd um að sé bursti við hliðina á skálinni í 98% tilvika... hafa aldrei heyrt um þetta undratæki ;-)

Svo finnst mér hreinilega alveg stórmerkilegt að ég þekki nokkra Dabba, stráka sem heita Davíð og þeir eru nú bara hver öðrum sætari.... hvernig sem stendur á því!!! Já og Dabbi minn þú ert allra sætastur alveg í 1-2 og þriðja sæti ;-)

Jæja segjum það kæru landsmenn
Yours truly
Sigríður Ásdís

FACEBOOK.................

12. apríl 2008 klukkan 10:25
Án efa mesti tímaþjófur síðari ára............. meira en sjónvarpið!!!!!! Var að hanga á þessu í morgun og tók próf og hér eru niðurstöðurnar.... mjög fyndið allt saman.

Hvaða lag er ég?? Ég er "Put your hands up for Detroit" með Fedde Le Grand
"You are a wild party animal! Nothing can stop you from dancing all night long and showing your moves to the world! But remember to relax a bit too! - Sometimes the hangover from yesterday should be spend in your bed rather than on the dancefloor!"

Dr.Phil "what is your personality"???
"Others see you as fresh, lively, charming, amusing, practical and always interesting; someone who's constantly in the center of attention, but sufficiently well-balanced not to let it go to their head. They also see you as kind, considerate, and understanding; someone who will always cheer them up and help them out."

Hvernig týpa er ég??
"Þú ert einstaklega vel heppnað eintak mannsbarn! Þú metur ekki fólk af verðleikum og kemur svo sannarlega til dyranna eins og þú ert klæddur! Þú ert skemmtilegur og gaman að umgangast þig, tala við þig og vera vinur þinn eða maki! Þú ert klár og ert að gera góða hluti í lífinu!"

Já held barasta að alltaf ef manni líður illa þá er það bara taka eitthvað test á facebook og það getur nú glatt manns litla hjarta ;-)  Já og svo var ég líka Bree í desperate houswifes, vá er alveg ekki hún sko, ætla ekki að taka titilinn af Kötu vinkonu.... ég er meira svona Susan held ég, ætla að sjóða vatn og brenni það og sé sætan strák og þá misstíg ég mig og svona..... hahahaha

Jæja best að halda áfram að hanga á facebook!!!!!!!!!!!!! Ef ég væri Bree þá færi ég nú frekar að taka til, en ónei manni dettur það ekki í hug.......

Kv.Fröken Sigríður



Könnunin í blússandi gír alveg....

08. apríl 2008 klukkan 22:10
Úrslit könnunar komin í ljós..... og ég er án efa mjög ánægð með niðurstöðuna!!! hahaha

Óli = 4 atkvæði
Sigga Dísa = 18 atkvæði
Íris = 0 atkvæði
Hún sjálf = 7 atkvæði

Jæja nú er ég búin að vera með þessa könnun hérna í smá tíma og flestir eru greinilega sannir vinir því ég er með yfirburða kosningu að Rakel Sara sé lík mér.... sem er algjör snilld!!! En það er einmitt það sem flestir segja sko að hún sé lík mér.... þangað til þeir sjá pabba hennar!!! Hitti einmitt tvær stelpur í Bónus um daginn sem ég kannast við og þær voru einmitt að segja "vá hvað hún er lík þér" og ég náttla bara JÚHÚ... en sagði svo að flestir segðu að hún væri alveg eins og pabbi sinn, þá sagði önnur "Já oft eru þau svona fyrst lík pabba sínum svo þeir viti að þau séu sín, svo skánar það" HAHAHAHA... fannst það mjög fyndið......

Oh svo er ég búin að vera með þenna líka gífurlega fína bíl í láni hjá henni Ingu minni, hún skellti sér í sólina og lánaði mér bílinn sinn á meðan, var alveg að fýla mig á glænýjum Avensins keyrðan 3500km fannst ég svaka pæja sko..... en á morgun kemur Inga heim svo ég þarf að láta kaggan af hendi sem ég er hreinlega ekki nægilega ánægð með, ætla aðeins að ræða betur við Ingu og athuga hvort hún vilji ekki eitthvað framlengja lánstímann, kannski um ca. ár eða eitthvað!!!! Annars er mig farið að langa ansi mikið til útlanda og er farið að verða slétt sama hvert bara eitthvað helst sko.... en samt nú fer sumarið að koma svo það er bara ágætt að nýta þessa fáu góðu daga hér á landi og baða sig í sólinni og fara í sund og svona!!! 

Hey já ég fór niður í geymslu og dró fram línuskautana mína og skellti mér á Langasand og fór að skauta, og ég hafði barasta engu gleymt!!!! Og það var alveg að gera sig að rúlla með vagninn á undan sér, með svona stuðning..... algjör snilld ;-)  Nei nei andskotinn, var að líta út um gluggann og það er byrjað smá að snjóa hahaha.... ég sem hélt að sumarið væri komið, en þetta er nú örugglega smá skot bara!!!!

Jæja þá er bara að skella sér í Reykjavík city á morgun, ef það verður ekki ófært HAHAHA

Kveðja Sigga Dísa í sumarfíling
P.S. NÝ KÖNNUN

AAAARRRRRRRRGGGGGGGGGGGGG..........

02. apríl 2008 klukkan 13:44
ÉG BARA HATA ALLA SEM ERU MJÓIR............... Allir þeir sem eru grannir eða eru ýkt duglegir í ræktinni og eru ýkt búin að missa mörg kíló og svona þá vinsamlegast ekki hringja í mig!!!!!!!! ÉG ÆTLA AÐ VERA FEIT AÐ EILÍFU..... og veriði blessuð

P.S. VILL ENGIN HELV.... KOMMENT :-(

og hvað.....

30. mars 2008 klukkan 22:26
vá apríl bara að koma og kræst er ekki að skilja hvað tíminn er fljótur að líða maður lifandi sko!!!!!! Er að fara með skvísuna í 5 MÁNAÐA skoðun á morgun, i know ótrúlegt ha???? En í morgun skelltum við okkur í fyrsta tímann í ungbarnasundi og það var bara geggjað, litla sunddrottningin mín alveg að meika það og fannst þetta bara skemmtilegt ;-)  Vá við fórum í barnaafmæli á laugardaginn og jehdúddi, er farin að fá kvíðakast yfir eins árs afmælinu hjá skvísunni..... hehehe....

Bandið hans Bubba, fylgist alltaf með þessum þætti og held nú barasta að síðasti þáttur hafi bara verið besti þátturinn sko. Ég meina Páll Óskar á svæðinu, hvað getur klikkað??? hehe.... já og náttla Björn Jörundur og þeir sungu báðir...... EKKI SLÆMT!!!!! Vá held að minn stærsti draumur sé nú bara að halda partý fyrir mig, Bjössa, Palla, Hemma Gunn og Ragga Bjarna....... ég er þeirra fremsti aðdáandi held ég bara!!!!!

Já hef ekkert að segja meira, ætlaði að segja eitthvað ýkt merkilegt en ég náttla man ekkert stundinn lengur svo ég hef ekki guðmund um hvað það var!!!!!!!!!!

Kv.Sigga Dísa